Jahá.. þetta sumar er búið að vera alveg asnalega fljótt að líða, enda hef ég ekki gert neeeeitt allt sumarið hehe.. Jú reyndar fór ég á Eistnaflug með Mundu í júlí og það var fínt sko.. gott roadtrip en það var eitthvað við þessa hátíð í ár og ég komst aldrei almennilega í gírinn, sem var alveg hundfúlt! Ég var að fara í þriðja skiptið í ár og það var bara eitthva sem tók mig út af laginu.. kannski var það að núna í ár var alveg heill haaaugur af fólki miðað við 2 fyrstu árin sem ég fór sem er nottla bara mjög eðlilegt enda er þetta að verða stærri og stærri hátíð. EN þetta var allt svo scattered. skiptist í svo marga hópa og allir voru svo samheldnir fyrstu árin hehe

En já.. svona gengur og gerist

Er bara mjög sátt og mjög fegin að hafa farið þessi þrjú skipti en ætli þetta hafi ekki verið mitt seinasta Eistnaflug.. En maður veit aldrei.. kannski dettur manni í hug að fara aftur á næsta ári
aaallavega... í dag er 17.ágúst.. og í gær var 16. ágúst og þá átti ég ammli!

ég er nú orðin 19 ára og er það bara alveg rosalega fínt.. núna er ár þangað til maður er tvítugur og ég held að ég sé að verða fullorðin bara

Það er nottla alltaf spurningin með andlega þroskann líka hehe

En í gær þá fór ég í velling til ömmu og fór útí vín með mömmu og ástu.. kom heim og fór á Greifann með Mundu, Silju, Söndru og Bittu og það var bara algert stuð og fékk mjög "spennandi" gjöf sem munda og silja gáfu mér hahaha


Endaði svo um kvöldið að fara út í bústað þeirra tengdó og þar var afmæli enda átti pabbi bjarna afmæli á mánudaginn seinasta og orðinn 50 ára. Það var mjög fínt þar

Pabbi er lika orðinn 50 ára og Yrsa orðin 40 og næstu helgi verður alveg svakalegt 90 ára afmæli.. Hlakka rosalega til í að fara í það;Þ
Bjarki frændi og kolla kærastan hans voru að eignast lítinn strák fyrir stuttu sem er alveg rosalega spennandi og hlakka mikið til að sjá hann hehe

til hamingju!

OG núna.. er ég að bíða að fá útúr prófunum mínum.. Er að deyja úr spenningi og hræðslu á sama tíma sem er ekki góð blanda finnst mér

held að ég hafi náð en samt ekki.. ohh! þoli ekki svona bið..
Svo er bara skólinn að byrja á miðvikudaginn.. eða þá eigum við að ná í stundatöflurnar og er alveg helvíti spennt að sja hana.. þá get ég byrjað að plana í kringum hana og eitthva sollis=) og svo líka bara að nuna hittir maður stelpurnar í skólanum á hverjum degi

nema Munduling

verðum bara að vera duglegar að hittast þegar greyið er ekki að vinna

og enski boltinn er byrjaður sem er bara skemmtilegt

og Torres minn skoraði sigurmarkið auðvitað í fyrsta leik Liverpool

En núna er ég bara búin að segja frá því svona með því mikilvægasta sem er búið að gerast í sumar..
Verið bless! og ég vona að ég verði aðeins duglegri við að blogga núna í vetur heldur en ég er búin að vera í sumar hehe